26.4.2015 | 00:52
Loksins skildu Íslendingar.
Eftir þennan bruna þá áttaði fólk sig á því að timburhús eru stórhættuleg og þá fóru menn að spá alvarlega í að byggja úr steinsteypu. Norðmenn eru ennþá við sama heygarðshornið og byggja ennþá mest úr timbri og þeir hafa fengið að kynnast þeim mistökum. Þrír stórbrunar urðu í þorpum í Noregi í fyrra. Timbur er víðast hvar notað sem eldsneyti. Að byggja hús úr eldsneyti getur varla talist gáfulegt.
Margir fræddust um brunann mikla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ármann Birgisson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Steinhús brenna líka....að innan sem utan. - En samt góð setning hjá þér..."Að byggja hús úr eldsneyti getur varla talist gáfulegt" - Stór-eldsvoðar hafa iðulega átt sér stað á höfuðborgarsvæðinu og það skiptir engu hvort er um að ræða steinhús, skemmur, verkstæði, verslunarhús eða íbúðarhús...allt brennur.
Már Elíson, 26.4.2015 kl. 11:15
Já og hugsaðu þér öll húsgögnin í húsum landsins sem geta farið að brenna hverær sem er og ætla ég að fá mér skrifborð úr steinsteypu á morgun. Einnig er öruggast að höggva allan skóg á landinu og helst stórt bláberjalyng líka. Ég sé fyrir mér eldhús innréttinguna alla úr spýtum og sjóðheita hellu, usss!! Og allir bátarnir maður.
Eyjólfur Jónsson, 26.4.2015 kl. 12:36
Már,,,,Steinsteypt hús eru samt öruggari t,d, að því leyti að eldur berst síður milli rýma og á milli hæða eins og gerist mjög oft með timburhús. Eyjólfur,,,það er kannski einum of að hafa húsgögnin úr steypu, en allir timburbátarnir ,,usss.
Ármann Birgisson, 26.4.2015 kl. 21:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.