15.6.2014 | 12:02
Eru blöðrur ekki rusl ?
Það er alltaf verið að minna fólk á að ganga vel um og henda ekki rusli út um allt en hvað með þessar blöðrur ?. Stundum er þeim sleft í þúsundatali og enginn talar um að þær séu rusl. Einhver staðar hljóta þær að lenda eru þá orðnar að rusli. Það virðist vera í lagi að henda rusli ef það svífur beint upp í loftið en það er ekki í lagi ef því er kastað beint frá sér eða út um bílglugga. Kannski ætti Neitendastofa að skoða þetta eitthvað.

![]() |
Gæta þarf að böndum í blöðrum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2014 | 00:11
Öbbinn ómissandi.
Ég hef notað örbylgjuofna mikið í 30 ár til að hita upp mat og þekki þá vel. þetta er draumatæki fyrir þá sem búa einir en þannig bjó maður oft. Kjúkling er í lagi að hita, líka frá KFC og svo er mjög gott að hita kaffi í Öbbanum þó margir haldi að það komi vont bragð af því en það er alls ekki rétt, hella því bara í venjulegan leirbolla (kaffibolla) og hita svo í 15 til 20 sekúndur. Margir virðast gera þau mistök að stilla á allt of langan tíma. Þá verður maturinn slepjulegur. En það er líka hægt að sjóða í örbylgjuofninum. Kartöflur soðna á helmingi styttri tíma í Öbbanum en í vatni á eldavél. Maður setur þær á disk (ekkert vatn) og skellir svo plastloki yfir eins og sett er yfir tertur og setur í gang. Plastlokið þolir hitann því Öbbinn hitnar ekki eins mikið og bökunarofn, passa bara tímann, ekki of langan... Öbbinn er snilldar uppfinning.

![]() |
7 hlutir sem eiga ekki að fara í örbylgjuofninn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 15. júní 2014
Um bloggið
Ármann Birgisson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar