Hver er ógnin af Rússum ?.

Þessi Baldur ætti að kynna sér betur hver hin raunverulega ógn er. það hlýtur hver heilvita maður að sjá að það er Bandaríkjastjórn og fjármagns mafían þar sem er mesta ógnin í Evrópu í dag með því að fjölga Nató herstöðvum sínum í löndunum kringum Rússland. Bandaríkin beita  svo lyginni og áróðrinum og hamra stanslaust á því að Rússar séu mesta ógnin. Prófessor í Stjórnmálafræði ætti að vita betur. Rússar yfirtóku Krím sem mótleik gegn Nató og um leið voru þeir að vernda íbúana gegn yfirgangi Úkraínustjórnar. Íbúar Krímskaga vilja að Rússar ráði skaganum og þeir hafa engan áhuga á að Skaginn tilheyri Úkraínu. Þessu komst ég að á ferð minni um Krímskaga í síðasta mánuði en þangað hef ég oft komið. Ég spurði marga um yfirtöku Rússa á Krím og þar á meðal nokkra Tatara sem margir héldu að Rússar myndu valta yfir, alltaf voru svörin eins,við viljum að Rússar ráði Krímskaga, Skaginn er Rússneskur.  Aðal markmið Bandaríkjanna með öllu þessu Nató brölti og áróðri er að þeir vilja komast yfir Rússland. Bandaríkin ÁSÆLAST Rússland vegna náttúru auðlinda þess og stærðar og hafa gert lengi. Þeim dreymir sérstaklega um að eignast Síberíu sem talið er að fljóti á olíu fyrir utan öll önnur verðmæt jarðefni sem þar finnast. Þær Madeleine Albright og Condoleezza Rice fyrrum utanríkisráðherrar Bandaríkjanna höfðu á orði á meðan þær gegndu sínum stöðum að það væri ekki réttlátt að Rússar réðu einir yfir svo stóru og strjálbýlu landi. Þetta hlýtur að segja allt sem  segja þarf.


mbl.is Sjónum beint að varnarleysi smáríkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að lykla ? ?.

Alltaf sér maður ný orð hér á mbl.is. Í minni sveit hét þetta einfaldlega að rispa. cool


mbl.is Bíllinn „lyklaður“ og stórskemmdur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf önnur hliðin.

Það er sama hve oft maður les fréttirnar frá átökunum í austur Úkraínu hér á Íslenskum miðlum,alltaf er fjallað um aðra hlið málsins. Aðeins er leitað til Úkraínskra yfirvalda og þau spurð um hver átti upptökin þegar bardagar blossa upp og þau kenna að sjálfsögðu Aðskilnaðarsinnum og Rússum um að eiga upptökin. Vestrænir fjölmiðlar lepja svo upp það sem stjórnvöldin í Kíev segja og það er birt í fréttunum.  Hvernig væri ef fréttamenn Íslenskra  fréttamiðla leituðu eitthvað lengra og myndu afla sér upplýsinga um hvað hinn aðilinn hefur að segja um málið og stöðuna yfirleitt. Ég var á Donbass átakasvæðinu í austur Úkraínu nú í byrjun mánaðarins og ég komst að því að íbúar svæðisins hafa líka sína skoðun á stöðu mála en sú skoðun má greinilega ekki koma fram. Aðskilnaðarsinnar eru og verða slæmi aðilinn í þessum átökum samkvæmt vestrænum fjölmiðlum.


mbl.is Fimm úkraínskir hermenn féllu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Molna ? ? ?.

Höfuðið var ekki byrjað að molna.laughing Það væri forvitnilegt að vita ástæðu þess hvers vegna höfuðið molnaði ekki.


mbl.is Fundu mannshöfuð í námu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nato er hættulegt.

NATO tók ekki herstöðvar sínar burt frá Evrópu eins og Rússar gerðu þegar allir héldu að kaldastríðið væri á enda heldur fjölgar NATO stöðvum sínum og fara nær og nær Rússlandi og halda því svo fram að Rússar séu að ógna og að þeir séu hættulegi aðilinn. Bandaríkin hafa því enn ekki hætt kaldastríðinu. Bandarískir ráðamenn halda líka fram stanslausum áróðri  gegn Rússum og að Pútín sé hættulegur og að Rússar séu hinir verstu vargar. Ástæðan fyrir því hvernig Bandarískir ráðamenn hafa hagað sér gegn Rússum í gegnum tíðina er sú að þeir ÁSÆLAST Rússland vegna náttúruauðlinda þess og stærðar. Rússland er 17 miljónir ferkílómetrar að stærð og oft hefur heyrst að Síbería fljóti á olíu svo miklar séu olíulindirnar. þar finnast líka önnur jarðefni eins og dýrir málmar, demantar, kol, og svo auðvitað verðmætið í landinu  sjálfu. Rússland er líka með gríðarlega langa strandlengju að Norður Íshafinu sem þýðir að Rússar eiga mikil réttindi þar. Það yrði því mikill fengur fyrir Bandaríkin að komast yfir Rússland. 


mbl.is Spáir stríði við Rússland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitfirringar hverjir ? ?.

Obama talar drýgindalega um hættuna af því ef hryðjuverkamenn komast yfir kjarnorkuvopn. En þó svo að Bandaríkjamenn séu ekki hryðjuverkamenn að þá eru Bandaríkin eina ríkið sem beitt hefur kjarnorkuvopnum í hernaði.embarassed


mbl.is Samstilltar aðgerðir gegn „vitfirringum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamla tuggan einu sinni enn.

Að fólk sé ofsótt af stjórnvöldum í landinu sem það kemur frá er gömul þreytt afsökun. Þetta tekur sennilega engan endi. Þau hjá Útlendingastofnun þekkja þessa gömlu tuggu. Ég þekki sjálfur dæmi um fólk frá Úkraínu sem laug sig inn í landið okkar og þau búa hér enn. Það fólk var að leita að vinnu en bar fyrir sig allt aðra og fáránlega afsökun fyrir veru sinni hér.surprised


mbl.is „Ekki like-a þennan status“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skíthælar.

Hvar eru múslímavinir núna?.Það væri forvitnilegt að sjá þá reyna að réttlæta svona framkomu eins og prinsessan varð fyrir.yell 


mbl.is Danaprinsessa fékk niðurlægjandi móttökur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skifta sköpum.

það er svakalega dónalegt.foot-in-mouth


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ármann Birgisson

Höfundur

Ármann Birgisson
Ármann Birgisson

Breiðholtsbúinn sí nöldrandi.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...9_2_1253758
  • ...009_2
  • ..._1072_032-1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband