Mikill léttir.

Maður á bara mun auðveldara með andardrátt eftir að þessar tvær grófu stríðsöxina. cool laughing


mbl.is Ekki lengur óvinkonur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2007.

Þessar aðstæður sem nú eru í þjóðfélaginu eru ýktari en þær voru árið 2007.cool


mbl.is Í hús með „bunka af kauptilboðum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta smáfrétt ? ?.

Auðvitað er þetta bara smáfrétt fyrir mbl.is að staðfest er að Trump verði næsti forseti Bandaríkjanna, öflugasta ríkis jarðar. Hún var sett inn kl 22:58 og strax búið að minnka hana og setja til hliðar. Ef umfjöllunin  væri aftur á móti um Hillary þá væri fréttin líklega  látin hanga efst uppi á síðunni í fullri reisn í þrjá sólarhringa.surprised


mbl.is Staðfestu Trump í embætti forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppreisnarmenn eða hryðjuverkamenn ? ?.

Hvernig skildi standa á því að fréttafólk mbl.is er farið að kalla Issis hryðjuverkamennina uppreisnarmenn?. Ætli fréttaliðinu finnist þeir allt í einu vera orðnir betri gaurar eftir að þeir töpuðu baráttunni fyrir Sýrlandsher og Rússum ?.embarassed


mbl.is Óskaði Sýrlendingum til hamingju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt of mikil kærugleði.

Samtökin 78 eru greinilega orðin einum of kæruglöð. Svo viðkvæm eru þau sem fara fyrir þessum samtökum fyrir gangrýni að þau kæra allt til hægri og vinstri ef fólk segir skoðun sína á hinseginfólki eða á  Samtökunum sjálfum og hvernig þau starfa. Jafnvel menn sem eru orðvarir en gagnrýna samtökin eru kærðir. Má bara alls ekki gagnrýna þessi samtök eins og margt sem er gagnrýnt í þessu þjóðfélagi, ég bara spyr ?. Þeir sem ekki þola smá gagnrýni og fara oftast í vörn hjóta að hafa slæman málstað að verja. Þessi kærugleði samtakana getur varla orðið til að auka vinsældir þeirra .,,,,Ætli ég verði ekki bara kærður fyrir þetta. embarassed


mbl.is Ekki verið með hatursorðræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brúin er of lág.

þetta er nú meiri bjána afsökunin hjá Reykjavíkurborg að benda á að vatnavextir hafi verið óvenju miklir. Brúardruslan er einfaldlega alltof lág. Það getur ekki verið flókin aðgerð að hækka hana. Ég er búin að taka eftir þessu í nokkur skifti þegar maður röltir um Elliðaárdalinn. Rafmagnskapall liggur samsíða brúnni hinumegin. þegar ég gekk framhjá brúnni fyrir mánuði þá var kapallinn niðri í vatninu og titraði vegna straumsins af vatninu,ég lét bilanavakt borgarinnar vita, við skoðum málið var svarið.Viku seinna er ég rölti framhjá brúnni lá kapallinn enn í vatninu. Svona eru sum vinnubrögð hjá borginni.


mbl.is Vatnsyfirborðið nærri brúnni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlutdrægni ? ?.

Eftir að hafa lesið greiningu Huldu á málinu þá sér maður að hún er mjög hlutdræg og ósátt við niðurstöðu kosninganna og hefur líklega vonað og búist við að Hillary myndi sigra.  Svo er spurning, hvar er Silja Bára núna?. Það er eins og allur vindur sé úr henni og hún virðist vera tínd, hún sem  talaði í eintómum fagurgala um Hillary en lýsti Trump sem ómögulegum á allan hátt.


mbl.is Rýnt í huga kjósenda Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Malbik ? ? ?.

Alltaf verður maður jafn undrandi á að malbik skuli enn vera notað á aðalbrautir og mikið ekna vegi. Ætla þeir sem ráða þessum málum aldrei að átta sig á að steinsteypa er mun endingarbetra og sterkara efni á aðalæðar. Það sýndi sig vel þegar Vesturlandsvegur var steyptur að hluta fyrir um 45 árum að steypan entist mun betur en malbikið. Í dag eru komnar fljótlegri aðferðir við lagningu steypunnar og svo er steypan orðin mun betri og sterkari en var. Malbik mætti eftir sem áður nota á bílaplön, hliðargötur og göngu og hjólastíga.


mbl.is Þynnra malbik var lagt í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Illa upplýst.

Ursula varnarmálaráðherra Þýskalands er illa upplýst um hvað er í gangi í Donbass í austur Úkraínu og á Krímskaga. Það hlýtur að teljast undarlegt að kona í hennar stöðu skuli ekki vita betur. Það sést á hennar málflutningi að hún hefur ekki komið á þessa staði til að kynna sér málin þar sjálf. Maður sér það hvað eftir annað að stjórnmálamenn,fréttamenn,bloggarar og fleiri tala og þvaðra um málefni Úkraínu án þess að vita um hvað málin þar snúast, og þeir sem hafa hæst er einmitt það lið sem aldrei hefur komið til Úkraínu. Málið er einfalt,KYNNA SÉR MÁLIN ÁÐUR en talað er um þau.cool


mbl.is Trump má ekki gleyma Aleppo eða Krímskaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt.

Flott niðurstaða. Vonandi bindur Donald Trump enda á kaldastríðið sem valdið hefur spennu í Evrópu og sem ráðamenn BNA svikust um að ljúka.cool


mbl.is Donald Trump kjörinn forseti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ármann Birgisson

Höfundur

Ármann Birgisson
Ármann Birgisson

Breiðholtsbúinn sí nöldrandi.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...9_2_1253758
  • ...009_2
  • ..._1072_032-1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband